Íslenska
19
Góð ráð við matvinnslu
Til að rífa
spínat
og önnur
salatblöð:
Raðið blöðunum
saman, rúllið
þeim upp og
látið þau standa upp á endann í ílagsopinu.
Vinnið með því að nota jafnan þrýsting.
Til að sneiða hrátt kjöt eða fuglakjöt,
eins og fyrir austurlenska matargerð:
Skerið matvælin eða rúllið þeim upp svo
þau passi í ílagsopið. Pakkið matvælunum
og frystið þau þar til þau eru hörð
viðkomu, 30 mínútur til 2 klst., eftir þykkt.
Athugið að hægt sé að stinga í matvælin
með beittum hníf. Ef ekki skal láta þau
þiðna lítillega. Vinnið með því að nota
jafnan þrýsting.
Til að sneiða soðið kjöt eða fuglakjöt,
eins og salami, pepperoni o.fl.:
Matvælin ættu að vera vel kæld. Skerið í
bita sem passa í ílagsopið. Vinnið með því
að nota þéttan, jafnan þrýsting.
Til að rífa þéttan og mjúkan ost:
Þéttur ostur ætti að vera vel kældur. Til að
ná sem bestum árangri með mjúkan ost,
svo sem mozzarella, skal frysta hann í 10
til 15 mínútur áður en hann er unninn.
Skerið svo passi í ílagsopið. Vinnið með því
að nota jafnan þrýsting.
Til að skera eða rífa perulaga mat
eins og sætar kartöflur, eggaldin og
kúrbít:
Setjið matinn á hliðina þannig að stærri
endinn sé vinstra megin við ílagsopið
þegar staðið er fyrir framan vélina. Vinnið
matinn með jöfnum þrýstingi á troðarann.
NOTKUN DEIGBLAÐSINS
Deigblaðið er sérhannað til
að hræra og hnoða gerdeig
fljótt og vel. Ekki þarf nema
einnar mínútu vinnslustíma eða minna til
að mynda deigkúlu. Ef hnoðað er lengur
en eina mínútu losnar deigið í sundur
og loðir við hliðar skálarinnar. Best er að
hnoða ekki í uppskriftir með meira en 50
til 375 gr (-3 bolla) af hveiti.
NOTKUN
EGGJAÞEYTARA
Til að gera mjúkan
eggjahvítumarens:
Látið 3 eggjahvítur og ¼ teskeið af
cream of tartar í vinnsluskálina með
þeytispaðanum í. Vinnið þar til freyðir, um
30 til 45 sekúndur. Hafið vélina í gangi og
bætið smám saman við 40 gr (¹/
³
bolla)
af sykri gegnum litla ílagsopið. Vinnið
þar til stífir toppar myndast, um 2½ til 3
mínútur. Stöðvið vélina eftir þörfum til að
aðgæta áferð hrærunnar.
Til að þeyta rjóma:
Setjið rjóma í vinnsluskálina með
þeytispaðanum í. Vinnið í 30 sekúndur.
Hafið vélina í gangi og bætið við 2
matskeiðum af flórsykri gegnum litla
ílagsopið. Vinnið þar til mjúkir toppar
myndast, um 30 til 40 sekúndur. Stöðvið
vélina eftir þörfum til að aðgæta áferð
hrærunnar. Hafið vélina í gangi og bætið ½
teskeið af vanilludropum, ef vill, gegnum
litla ílagsopið. Vinnið þar til allt er vel
þeytt. Gætið þess samt að ofvinna ekki.
Comments to this Manuals